9.2.2009 | 12:32
Hörður Torfason - Raddir fólksins!!! Hvað með Ásmund Stefánsson sem réð sig sjálfur í stöðu bankastjóra Landsbankans!!!
án þess að staðan væri auglýst - og fór síðan í mánaðar frí til Indlands!!! Finnst ykkur þetta í lagi???Ekki mér!
Ef þið hefðuð mætt við Landsbankann í morgun - og mótmælt þessu gerræði Ásmundar Stefánssonar og bankaráðsinns og allri spillingunni sem viðgengst í bankanum - þá hefði ég kanski mætt með ykkur!!!
En þessi Seðlabankatugga ykkar og Davíð burt - er bara gjörsamlega merkingarlaus - Þið hafið aldrei sagt af hverju þið viljið Davíð burt í þessar 17 - 18 - eða 19 - vikur sem þið hafið æpt - Davíð burt. "PLísssssssss"Mótmælið einhverju sem skiptir - virkileg máli fyrir okkur öll - án þess það þurfi skýringa við! Þá mæta fleiri.
![]() |
Hittu ekki seðlabankastjórana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Feikilegar vonir hafa verið bundnar við nýjan bankamálaráðherra Gylfa Magnússon - En hvað er hann að dunda - sér hann ekki æpandi verkefni fyrir sig í bönkunum???
Vill hann ekki vera svo vænn að koma fram í dagsljósið og segja fólki frá því - hverju hann ætli að kippa í lag á sínum væntanlega 80 dögum á ráðherrastóli?
Ætlar hann að láta spillinguna viðgangast ?Ætlar hann ekki að hreinsa út gamla spillingarliðið úr Landsbankanum ? Ætlar hann að láta sjálfsráðningu Ásmundar Stefánssonar í bankastjórastöðu Landsbanks viðgangast ??? Ætlar hann ekki að sjá svo um að sparifjáreigendum í Landsbankanum verði skilað sparifé sínu nú þegar??? Hvað líður sparifénu í frystu sjóðunum???
Öllum sparifjáreigendum hefur verið lofað af stjórnvöldum - öllu sparifé sínu skilvíslega til baka - frá bankanum!
Tími þolinmæðinnar er þrotinn! - Nú er að standa við loforðin - Bankamálaráðherra!
Jóhanna! - þetta er þín vakt - Jóhanna!
Eruð þið nokkuð að bíða eftir aðstoð frá - Búsáhaldabyltingunni ???
![]() |
Mótmæla ráðningu Ásmundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2009 | 01:27
Jóhanna! - Hættu að láta Davið Oddson tæta þig og trylla!!!
Snúðu þér að því sem skiptir þjóðina og heimilin máli - Viðskiptabönkunum - segistu ekki ætla að - Endurreisa að fullu traust á fjármálakerfinu - Þá skaltu sjá til þess að - Hreinsað verði út úr bönkunum allt gamla spillingar liðið - svo bankarnir geti farið að virka eins og bankastofnanir eiga að gera - En ekki eins og þeir gera í dag - Inkaso - með ábatakerfi fyrir starfsliðið þar!!!
Heimilin bíða eftir því að þú sinnir þessu - NÚNA STRAX - JÓHANNA !
Þetta er málið - þú lofaðir heimilunum fulltingi þínu - Jóhanna !!!
Jóhanna! - ræstu út - BANKAMÁLA - RÁÐHERRANN - Jóhanna!
![]() |
Lýsir miklum vonbrigðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.2.2009 | 00:38
Lúðvík Bergvinsson og siðbótarvæðing - Samfylkingarinnar!!!
Ingibjörg Sólrún - formaður Samfylkingarinnar boðaði "siðbótarvæðingu"- Fyrir hverja á þessi siðbótarvæðing að vera -Fyrir Samfylkinguna-sjálfa ??? Eða bara fyrir - HINA !!!
Lúðvík dreymdi um ráðherrastól - en fékk ekki !- en það voru ekki fjármál Lúðvíks sem komu í veg fyrir það!!! - segir forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir í varnaryfirlýsingu fyrir Lúðvík.
En - Heilög Jóhanna - hvað er það sem gerir Lúðvík hæfan til að vera þingmaður og formaður þingflokks Samfylkingarinnar - jafnhliða því að starfa við bygginga og húsnæðisbrask - eins og haft hefur verið eftir honum sjálfum í fjölmiðlum.
Ætti ekki að vera ærið starf að vera þingmaður - á fullum launum ?
Þjóðin vill ekki svikula þingmenn Samfylkingarinnar!!! BURT MEÐ - LÚÐVÍK !!!
Hvað hefur Samfylkingin marga SKUGGA-BALDRA á sínum snærum ?
![]() |
Fjármál Lúðvíks ekki ástæðan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.2.2009 | 02:14
Bankamála - ráðherrann - hinn nýi - og Landsbankinn !!!
Vökul augu þjóðarinnar fylgjast með málum Landsbankanns - veit almenningur meira hvað þar er að gerast en sjálfur - BANKAMÁLA - RÁÐHERRANN - !!!
Hvenær verður hreinsað út úr Landsbankanum - allt skipuritið sem Sigurjón Árnason hafði með sér úr Búnaðarbanknum - er ekki nóg - það þarf að fjarlægja allan Pyramídan frá toppi niður á gólf og ný sjálfráðinn bankastjóra og bankaráð.
Greiningardeildir bankanna verði lagðar af þær högnuðust vel á því starfi sínu að ljúga að fólki !
Þjóðhagsstofnun verði endurreist.
Flugufótur lætur hafa það eftir sér að ábatakerfið sé ennþá í gangi og fleiri vafassöm vinnubrögð.
Það myndast ekki krónumarkaður erlendis fyrr en hreinsað hefur verið út úr bönkunum - útlendingar hafa ekki viðskipti við bankana fyrr en út-hreinsun hefur átt sér stað.
Er bankamálaráðherrann að bíða eftir aðstoð frá Búsáhaldabyltingunni?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.2.2009 | 00:43
Samfylkingin og Davíð Oddson !
Einelti Samfylkingarinnar gegn Davíð Oddsyni er ekki fyrst að byrja með frumvarpi núverandi forsætisráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur - um Seðlabankan.
Samfylkingin hefur yfir lengritíma einhent sér í að leggja Davíð Oddson í einelti - það eina sem Samfylkingin hefur opinberlega sýnt samstöðu um.
Minnistætt er þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kom frá Bandaríkjunum sl. haust eftir sögulegt framboðsátak hennar til Öryggisráðsins - og einnig stofnun hennar á- Styrktarsjóði fyrir smá eyríki - og skuldbatt þar íslensku þjóðina til að greiða í þennan sjóð 4,5 milljónir Bandaríkjadala í næstkomandi þrjú ár!!!
Á þessum tíma hlaut Ingibjörg Sólrún að vita hvað vofði yfir fjármálum þjóðarinnar!!!
Ingibjörg Sólrún var ekki fyrr komin til Íslands eftir þessa frækilegu för sína en hún kom fram í fjölmiðlum með fyrirskipanir til Davíðs Oddsonar Seðlabankastjóra að hverfa þá þegar í stað úr Seðlabankanum - með dylgju tali - lét hún að því liggja að ellegar væri stjórnarsamstarfi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins lokið.
Á eftir fylgdu fleiri ummæli á svipuðum nótum frá Samfylkingarfólki í garð Davíðs Oddsonar - vert er að nefna sérstaklega þá Össur Skarphéðinsson og Ágúst Ólaf Ágústson - þeir fylgdu eineltinu fast eftir.
Utanfrá séð virkar þetta einelti Samfylkingarinnar á Davíð Oddson sem dómgreindarlaus árátta - í þeim tilgangi einum gert - að draga athyglina frá óþægilegum málum í eigin ranni.
Davíð Oddson er mikilhæfur maður það er lýðnum ljóst - en að hann sé slíkt ofurmenni að hann ráði öllu á Íslandi og allt sem miður fer sé honum að kenna - er áráttu kennt ofmat Samfylkingarinnar á annars mikilvægum manni - Davíð Oddsyni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
2.2.2009 | 12:28
Búsáhaldabyltingin á Bessastaði !!!
Ætlar útrásar brjálæðið að halda áfram á Bessastöðum????????????? " Ísland Dubai norðursins" segir "STÓRASTA FRÚIN" á Bessastöðum -Vafasamur heiður það!
NÚ - ER Nóg - komið - þó fyrr hefði verið!!!! Hreinsum út af Bessastöðum-Burt með - "PARIÐ" - af Bessastöðum!!!!!!!!
![]() |
Dorrit: Ísland verði svalari útgáfa af Dubai |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
31.1.2009 | 22:07
Umboð það sem Ólafur Ragnar Grímsson veitti Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og SteingrímiJ.Sigfússyni
umboð til myndunar nýrrar ríkisstjórnar - tímasetningin-rann út á hádegi 29.janúar 2009 -Þá áttu þau að vera búin að mynda starfhæfa Ríkisstjórn. Ellegar skila inn umboðinu - þar sem það var runnið út. Er þetta ekki tímasetning og vinnubrögð sem Á og þarf að virða. Afhverju hefur forsetinn ekki - innkallað aðra og látið þá hafa umboð - til stjórnarmyndunar ???????
Samfylkingin - Vinstri Grænir og Framsóknarflokkurin - hafa ekki ennþá - myndað Ríkisstjórn ??? og engin vissa fyrir því- að það takist.
Ingibjörg Sólrún fékk umboðið en Jóhanna Sigurðardóttir hefur sinnt því - í framkvæmd - Þetta er ekki eftir lagabókstafnum - þarf ekki i að fylgja honum ??????????????
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.1.2009 | 19:06
Ný ´"ríkisstjórn" með lík í lestinni sem heitir Samfylkingin - eða "Tætlufylkingin"!!!!!!!
![]() |
Framsókn ver nýja stjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2009 | 18:31
Samfylkingin ekki stjórntæk með neinum !!!!!!!!!!!! Það er vitað !
![]() |
Hlé gert til að ræða málin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)