22.11.2009 | 18:03
Hindrunum - RUTT- úr vegi Suðvesturlínu - sagði Jóhanna Sigurðardóttit - " fullviss " - í máli á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ !
Eru þetta hótunarskeyti á Vinstri græna - að hún hendi þeim á haugana ef þeir geri ekki eins og hún segir þeim - það mætti skilja það þannig - eitthvað er henni þungt niðri fyrir!
Árni Þór Sigurðsson þingflokksformaður Vg.var nú ekkert kátur þessari skeytasendingu - í útvarpsfréttunum í hádeginu í dag -
Þegar Árni Þór var spurður álits á orðum Jóhönnu um Suðvesturlínuna - sagði hann að það hefði verið "betra að segja minna en meira" - þannig að smá skeytasendingu fékk Jóhanna til baka.
Greinilegt er að hótana-samskipti ríkisstjórnarflokkanna eru komin í fréttamiðlana.
Bessastaðir eru í nánd !
Hindrunum rutt úr vegi Suðvesturlínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.