Ég vil gefa - HRÓS - matreiðsluþáttunum hennar Jóhönnu Vigdísar á RÚV sjónvarp - þeir eru án nokkurs vafa bestu matreiðsluþættir sem sjónvarpið hefur sýnt !

Hafa þeir þó nokkrir verið á skjánum í gegnum árin - sannast sagna flestir bæði lélegir og leiðinlegir.

En þátturinn hennar Jóhönnu Vigdísar er í alla staði frábær - uppskriftirnar einfaldar - fljótlegar - praktískar og bragðast vel og Jóhanna Vigdís er skemmtileg við eldamennskuna.

Hún er góður kennari sýnir hvernig vinna á í eldhúsi - aðferðir við að matreiða - já og eldhús klæðnað -  Jóhanna Vigdís er ekki með peysuermarnar fram á handabök og borðandi upp úr pottunum með sleifinni eða spaðanum - eins og einn þáttastjórnandi (útlendur) sem var lengi með matreiðsluþætti í sjónvarpinu fyrir nokkrum árum.

Takk fyrir góða þætti Jóhanna Vigdís - Góðir Þættir sem þola vel endursýningar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband