Hafa einhverjir verið að hætta að blogga á mbl.- Ekki hef ág orðið vör við það !

Þó einhverjir gangist upp við það að svara - kalli - Eyjunnar - þá hvað með það....?

 Þeir nýju sem koma inn - eru meira áberandi en þeir sem fara......!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heil og sæl; Borghildur !

Með; ráðningu, efnahagsmála bjálfans; Davíðs Oddssonar, að ritstjórn Mbl., hefir margt mætra manna, sem kvenna, yfirgefið þennan vettvang okkar, Borghildur mín, þó fagna beri tilkomu nýrra - að sjálfsögðu.

Ég er; svona viðlíka þvergirðingur og þú, í mínum þjóðernis hugsjónum, að geta ekki hræsnað um hlutina - og; segi því mína meiningu, formálalaust, hér sem oftar og annars staðar.

Þó; fjöldi spjallsíðu hafa, hafi hrakist héðan, af Mbl. vefnum - eða; ekki talið sér vært lengur, hljótum við, sem einhverjar ærlegar taugar höfum til að bera, að sakna andstæðinga okkar - úr öllu litrófi stjórnmálanna, sem samherja okkar, einnig, yfir til annarra vefsíðna, kæra Borghildur.

Annað; bæri vott, mikillar tvöfeldni, ekki satt ?

Með beztu kveðjum; sem jafnan, úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason, frá Gamla Hrauni og Hvítárvöllum  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 5.10.2009 kl. 16:06

2 Smámynd: Benedikta E

Kæri Óskar!

Þeir einu sem myndu láta sér til hugar koma að  taka upp á því að leggja á flótta frá ritstjórn Davíðs Oddssonar - sem í ofaná lag kemur ekki í einu né neinu nálægt blogginu - eru fyrst og síðast - Evru-flokkssinnarnir sem eiga að mínu viti ekki nema minna en ekki neitt sameiginlegt með mér og þér og okkar líkum -  Óskar.

Takk fyrir innlitið.

Baráttu- kveðjur

Ísland fer aldrei í ESB..............!

Benedikta E, 5.10.2009 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband