Ætíð og alltaf - Þjóðin þarf fleiri slíka.
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins - sögðu - NEI - við ríkisábyrgð á Æsseif það voru þeir Birgir Ármannsson og Árni Johnsen - 14 - sátu hjá og Illugi Gunnarsson var fjærverandi
Margir sjálfstæðismenn eru - HUGSI - !
Í jafn afdrifaríku máli og Æsseif gjörningur Landsbankans er fyrir þjóðina - er hjáseta þingmanna ekki ásættanleg.
Þingmenn þurfa að þora þegar þjóðarhagsmunir eru í húfi........!
Þingmönnum ber skylda til að hafa þjóðarhagsmuni ávallt í fyrirrúmi og þá dugar ekki að hanga á girðingunni.........!
Gat ekki fallist á að veita ríkisábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Sæl Benedikta og ég er alveg sammála þér með þetta. Og í það minnsta get ekki skilið hvað það þýddi að sitja hjá, ef þeir í alvöru voru andvígir því að nauðungin færi í gegn.
ElleE (IP-tala skráð) 30.8.2009 kl. 11:37
Á Bjarna mátti skilja,að hugmyndir Sjálfstæðismanna væru einnig á fyrirvörunum og líta mætti svo á að þeir væru að hafna þeim eftir að hafa staðið að þeim. -GLÆTAN- "Illa lesið í vörninni"
Helga Kristjánsdóttir, 30.8.2009 kl. 12:33
Sælar báðar tvær ElleE og Helga.
Já það er þetta hvað er í alvöru og hvað er ekki sagt í alvöru ?
Það kemur oftast að því að slíkt tvískinnungs hjal - afhjúpast af eigandanum sjálfum.
Í hádegisfréttum útvarpsins í dag var vitnað í yfirlýsingu Bjarna Benediktssonar frá því í gær sem ég heyrði þá ekki..........en hljóðaði svo..........
Bjarna Ben. - finnst að forsetinn egi aldrei að ganga gegn þinginu með þjóðaratkvæðagreiðslu............og þar af leiðandi finnst honum að forsetinn egi að samþykkja lög um ríkisábyrgð á Æsseif..........(.lög sem hann sjálfur og meirihluti þingflokks hans sat hjá við - í afgreiðslu í Þinginu.)
Er hægt að botna í svona þvaðri ?
Ég vona að ég hafi misskilið þessa skoðun Bjarna Benediktssonar !
Þjóðaratkvæðagreiðsla er stjórnarskrár varinn réttur samkvæmt 26.gr. stjórnarskrárinnar milli - forseta íslenska lýðveldisins og þjóðarinnar - alveg sama hvað Bjarna Benediktssyni finnst um það..........!
Heyrðu ElleE - þú varst að nefna mögulega kæru á síðunni hans Gunnars Skúla í gær - geturðu útskýrt það frekar hvernig er staðið að slíkri kæru ?
Takk fyrir innlitin stelpur.
Benedikta E, 30.8.2009 kl. 13:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.