24.8.2009 | 11:27
Fordæmisgefandi !? - "Ríkisábyrgð" á Æsseif gjörning Landsbankans - banka í einka eigu í útlöndum!
Með samþykkt á ríkisábyrgð á Æsseif gjörningi Landsbankans væru stjórnvöld að skapa fordæmi fyrir önnur einkafyrirtæki..........!
Það er ekki fyrir séð hvaða flóðbylgja gæti skapast með fordæminu - hvað með Eimskip og flugfélögin?
Íslenska ríkið er ekki ábyrgt fyrir skuldum íslenskra fyrirtækja í útlöndum.
Stjórnvöld hafa ekki leyfi til( vísað er þar til 10.kafla almennra hegningarlaga 91. gr. - einnig 40. og 41.gr. Stjórnarskrárinnar) að knésetja íslensku þjóðina til skulda-ánauðar og varanlegrar fátæktar um ókomna framtíð vegna slíks gjörnings.............!
Stjórnvöld hafa ekki lagalega heimild til slíks gjörnings - mikill meirihluti þjóðarinnar er alfarið á móti því að gangast undir ólögmætan skuldaklafa vegna Æsseif gjörnings Landsbankans.
Þingmenn á Alþingi Íslendinga - segið -NEI - við ríkisábyrgð á Æsseif !
Vilja að ríkisábyrgð verði skoðuð betur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.