22.7.2009 | 15:07
"Júdasarnir" byrjaðir/ar - að hrynja út úr skápum þingnefndanna!
Mér er spurn getur einn og sami þingmaðurinn verið varamaður fyrir marga þingmenn á sama tíma - í þinginu?
Og gegnt því hlutverki að undirskrifa meirihluta álit og greiða atkvæði í þinginu við afgreiðslu þingmála fyrir fleiri en einn þingmann samtímis ?
Bjarkey Gunnarsdóttir er varamaður Björns Vals Gíslasonar frá byrjun þingfundar þann 16.júlí - í dag er sama Bjarkey sett inn í efnahags og skattanefnd til undirskriftar á meirihluta áliti nefndarinnar fyrir Lilju Mósesdóttur sem lýst hefur yfir andstöðu sinni við Æsseif málið á þingi...En sama Bjarkey er ennþá í varaþingmannshlutverki fyrir Björn Val sem er í leyfi frá þinginu....
Björn Valur og Lilja Mósesdóttir eru ekki þingmenn í sama kjördæmi - hefur ekki hvert kjördæmi sína varamenn ?
En með valdboði var málið tekið úr efahags og skattanefnd í dag eftir að Bjarkey Gunnarsdóttir hafði skrifað undir meirihluta álitið ...........
Svona lítur lýðræðið út á Alþingi Íslendinga í dag........í gíslingu hótana og valdshroka Jóhönnu Sigurðardóttur........
Icesave keyrt út úr efnahags- og skattanefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nefndarskipanir eru alveg ótengdar kjördæmum. Þær snúast meira um sérsvið hvers og eins eins og sést með skipan hagfræðidoktorsins í efnahags- og skattanefnd.
Ísleifur Egill (IP-tala skráð) 22.7.2009 kl. 15:18
Bjarkey er ómenntuð og er því ekki í nefndinni út af gráðum.
Eva S. (IP-tala skráð) 22.7.2009 kl. 15:23
Takk fyrir upplýsingarnar Ísleifur.
Einnig takk fyrir innlitið.
Benedikta E, 22.7.2009 kl. 15:36
Eva.
En er Bjarkey samt fullgild til að skrifa undir meirihluta álit ?
Takk fyrir innlitið.
Benedikta E, 22.7.2009 kl. 15:39
Lilja M. þykist kannski vera að "spara" Ef kallaður er út varamaður þarf að borga honum 1/2 mán. laun. Þetta eru ömurleg vinnubrögð og mikil vonbrigði.
Sigrún G. (IP-tala skráð) 22.7.2009 kl. 16:00
Segi sama Sigrún.
Því Lilja er búin að tjá sig um að hún sé á móti Æsseif - Þetta eru þau Jóhanna og Steingrímur sem eru að valta yfir............
Takk fyrir innlitið.
Benedikta E, 22.7.2009 kl. 16:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.