9.7.2009 | 23:29
Lífið.
Lífið er eins og antilbúð - þar sem öllu ægir saman - ekkert er í röð og reglu - eða virkar þannig - þar til betur er að gáð......
Ef þú ferð á hraðferð í gegnum slíka búð - sérðu ekki neitt - allt rennur saman í eitt. Drasl - Drasl.
Þú sérð ekkert sem vekur áhuga þinn.
Veist í raun ekkert hvað er þar innan dyra.
Þú æddir framhjá gersemunum - án þess að taka eftir þeim.....
Þannig er heimurinn.
Þú getur ætt í gegnum hvern daginn af öðrum - án þess að grípa tækifærin - sem allsstaðar leynast - bara þú tækir eftir þeim......
Æða - án þess að uppgötva innihald lífsins.......
Æða - án þess að finna samhljóminn við lífið sjálft......
Athugasemdir
Fallegt KNuuuuS
vera (IP-tala skráð) 9.7.2009 kl. 23:42
Takk Sponsan!
Síminn virkar bara í eina átt..........Hringdu!
Benedikta E, 9.7.2009 kl. 23:59
Stafa villa í byrjun texta - á að vera antikbúð.........leiðréttist hér með.
Með kveðju.
Benedikta E, 10.7.2009 kl. 00:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.