20.3.2009 | 11:20
Markaðsetning trúverðugleikans Jóhanna - Þú og þín fylking sjáið um það sjálf - ekki Sigmundur Davíð!
Er ekki Sigmundur Davíð að segja aðeins sína skoðun - að fenginni reynslu með samstarfið við ykkur í "fylkingunni".
Þú sjálf hefur markaðsett orðheldni þína og hroka Jóhanna - af nógu væri að taka í þeim efnum!
En vert er að nefna - skjaldborgirnar sem þú ætlaðir að slá um heimilin - fyrirtækin - og fullkomna endurreisn efnahagsmála ?
Voru þessir málaflokkar ekki forsenda fyrir stuðningi Framsóknar við ríkisstjórn þína Jóhanna?
Veit ekki betur.
Margir furða sig á langlundargeði Framsóknar við þig Jóhanna og fylkinguna þína.
Skjaldborgar myndun þín - marklaust kjaftæði - hvergi komið fram í efndum - aðeind í þínum munni Jóhanna!
Þannig eru vinnubrögðin Jóhanna. Það hjálpar þér ekkert að standa í pontu á Alþingi og æpa í æsingi um "orðagjálfur" Sigmundar Davíðs.
Þið í Samfylkingar-flokknum kynnið ykkur sjálf með verkum ykkar - orðum og efndum!
Undrandi á orðum Sigmundar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.