23.1.2009 | 12:26
Lærdómsríkt fyrir vonbiðla Samfylkingarinnar - að sjá hvernig samstarfsflokkur í ríkisstjórn Samfylkingin er! ! !
Hvað er að gerast í Samfylkingunni ? Allavega hefur flokkurinn opinberað sitt innra eðli - fyrir þjóðinni - samstarfsflokknum í ríkisstjórn og sínum eigin formanni - Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.Hún má ekki bregða sér af bæ - þá æðir liðið í Samfylkingunni af stað eins og höfuðlaus her - dansar á borðum - gefandi yfirlýsingar og ályktanir í austur og vestur - sem enginn getur tekið mark á. En sýnir það fyrst og síðast - að Samfylkingin hefur ekki burði til að vera í ríkisstjórnar samstarfi. Hvernig verður útkoma Samfylkingarinnar í næstu skoðanakönnun ? Hver getur treyst svona liði til að vinna af heilindum með alvarleg mál þjóðarinnar ? ? ?
Allt kemur til greina" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.