10.1.2009 | 20:57
Draumur þinn - Kæra þjóð.
Hér er Hann mættur - mitt á meðal - að tala inn í anda þinn.
Honum er það ætlað.
Draumur þinn - er Hans verkftæði - fyrir þig - lykillinn að gjöf þinni - frá Honum.
Gjöfin - er í ljósinu.
Óttinn - er í myrkrinu.
Ljósið - hrekur myrkrið á braut.
Ljósið og myrkrið - eiga ekki samleið.
Gættu að eldsneytinu fyrir ljósið þitt - svo það fái skinið skært fyrir draum þinn.
Óttinn - er óvinur draumsin.
Óvinurinn - hvískrar - Þetta er algjör vitleysa - Vitleysa er þetta - Vitleysa er ekki boleg fyrir mig.
" ÉG " er í rammanum - Það er ekkert rétt - nema það sem er í rammanum.
" ÉG " verð að passa upp á rammann - hann má ekki brotna - þá er ég búinn - Búinn að vera.
Ramminn - ER - mitt öryggi - gegn - vitleysunni.
Vitleysan - getur brotið rammann.
Vitleysan ógnar.
" ÉG " hef mentunina - " ÉG " hef þekkinguna - " ÉG "hef metnaðinn - " ÉG " veit.
JÁ - "ÉG " einn veit - ALLT - BEST.
Það er " ÉG " sem ræð - ÖLLU.
Það eru átök - milli ljóss og myrkus - milli góðs og ills - milli þess jákvæða og neikvæða.
Óvinurinn - vill gera draum þinn að engu.
Gættu að gjöf þinni í ljósinu - leyfðu henni að skína.
Notaðu mótstreymið - eins og örninn gerir - til að lyfta þér - Hærra og Hærra - yfir andstreymið - UPP - til móts við dýrðina.
Trúðu á draum þinn - Þú ert ekki einn á ferð.
Guð gaf erninum flugið.
Örninn sagði - TAKK - og tók flugið.
Þú átt að nota þær gjafir sem þér voru gefnar - af Honum - í vöggugjöf.
Ekki bara fyrir þig - aðrir eiga að fá - að njóta gjafanna með þér.
Gakktu fram í djörfung í gjöfum þínum - Þú ert ekki einn á ferð.
Þig dreymir um draum þinn - því gjöfin - ER - innra með þér.
Gjöfin - er frá Guði komin - Hann hefur útbúið þig - með þá hæfileika - sem þú þarft að hafa - til að gera draum þinn að veruleika.
Vilt þú þiggja gjafir Hans til þín - fyrir draum þinn ?
Þú hefur frjálst val - frjálsan vilja.
Láttu Hann vita - hvort þú tekur á móti gjöfinni - Ef ekki - þá setur Hann hæfileikana annað - þangað sem þeir nýtast - í áætlun Hans.
Hver og einn og sérhver - hefur tilgang í áætlun Hans.
Treystu Honum.
Hann var og Hann er - Alfa og Omega.
Hver eru verkfærin - sem Hann hefur leitt til þín - NÚNA - fyrir draum þinn ?
Hann gerir allt - með tilgangi.
Hann er ekki að dunda - í neinu - sem er gagnslaust.
Þinn skilningur er sá rétti fyrir þig - hann er í gjöfinni.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.