6.10.2010 | 23:20
Glaðningur til Jóhönnu og Steingríms : Hundruðum kílóa af úldnum fiskúrgangi var sturtað við útidyr heimila þeirra Jóhönnu og Steingríms um helgina!
Það sem afgangs var af úldnum úrganginum var komið fyrir í runnum á Austurvelli - lögreglan hafði víst haft upp á úldnum úrganginum í runnunum og fjarlægt hann - Sagt er að úldni fisk úrgangurinn hafi verið sóttur til Keflavíkur svo þó nokkuð hafa verktakarnir lagt á sig til að gleðja Jóhönnu og Steingrím - oddvitapar óhæfu ríkisstjórnarinnar. - heimildir af vísi.is
Mótmælendum fjölgar ört | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Og þetta finnst þér sniðugt og viðeigandi eða hvað Benedikta ?
hilmar jónsson, 6.10.2010 kl. 23:35
Hilmar - Þetta er sko skapandi hugvit sem fáum er gefið í slíku mæli - Hvað verður það næst ?
Benedikta E, 6.10.2010 kl. 23:41
Komið þið sæl; Borghildur - Hilmar, og aðrir gestir, hér á síðu !
Hilmar minn !
Þetta er; jafn viðeigandi, og að koma slíku gromsi fyrir, á tröppum: Davíðs - Halldórs - Valgerðar - Geirs H. og Ingibjargar S., svo nokkur séu upp talin.
Hvenær; hyggst þú láta, af óumræðilegu dekrinu, við liðónýta stjórnmálamenn, þessa volaða lands okkar, Hilmar minn ?
Ekki; hafa þau Steingrímur og Jóhanna hlaupið til, og forðað fjölskyldum frá uppboðum helztu glæpa manna þessa lands, Banka soranum - lögfræðingum þeirra og Sýslumanna ófétunum, Hilmar minn, til þessa.
Átt þú von; á breytingu, í þeim efnum, ágæti drengur ?
Vera; sjálfum sér samkvæmur Hilmar - ekki; HRÆSNA, um hlutina !!!
Með beztu kveðjum; sem jafnan /
Óskar Helgi
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.10.2010 kl. 00:43
Engin hræsni af minni hálfu. Ég hef alltaf verið á því að heimili fólks eigi að vera friðhelg, hvar sem fólk er í flokki Óskar.
hilmar jónsson, 7.10.2010 kl. 00:45
Komið þið sæl; að nýju !
Hilmar !
Heimili GLÆPA LÝÐS (Stjórnmála manna; ýmissa - margra lögfræðinga, sem ganga erinda Banka þjófnaða stofnana og Sýslumanna); eiga EKKI, að vera friðhelg, á byltingar tímum, ágæti drengur.
Það á; engu að eira, fyrr en búið er, að ganga á milli bols og höfuðs, á rudda liði, þessa lands !!!
Punktur !!!
Með; sízt lakari kveðjum, en þeim fyrri /
Óskar Helgi
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.10.2010 kl. 00:51
Hilmar - Slorið var aðeins sett við dyrnar hjá oddvitaparinu - það var ekki svo að því væri mokað yfir þau innan dyra - aðgerð sem alveg gæti hafa átt rétt á sér ef málin eru skoðuð betur til dæmis ef litið er á frammistöðu Steingríms í Kastljósi í kvöld - ég var að sjá hann í endurflutningi núna - Steingrími er ekki viðbjargandi - oddvitaparið á að víkja - STRAX - ef ekki á eigin löppum þá með því sem þarf til að koma þeim burtu - jafnvel með - SLORI - Ég var niðri á Austurvelli að berja stanslaust í tunnu - frá kl. 17 - kl. 20 - og með íslenska fánann við hún - Það er grafalvarleg stjórnmálakreppa í landinu - óhæf ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms og vanhæft þing........................
Benedikta E, 7.10.2010 kl. 01:26
Óskar - Takk fyrir þitt innlegg í umræðuna - þar kemst ég ekki með tærnar þar sem þú hefur hælana.
Benedikta E, 7.10.2010 kl. 01:29
Benedikta,-v/ Kastljóssþáttarins í gærkvöldi: Fannst þér ekki frammistaða spyrilsins beinskeytt?! Nikkaði höfðinu brosandi og samþykkjandi við hvert orð mikilmennisins, en forðaðist hið auðveldasta af öllu, að koma vealings manninum í klípu!
Vestri (IP-tala skráð) 7.10.2010 kl. 14:45
NEI - Spyrillinn virkaði ekki í það heila tekið - en það er oftast þannig með spyrlana þegar Steingrímur er í Kastljósi - þá hefur hann algjörlega frítt spil.
Benedikta E, 7.10.2010 kl. 15:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.