15.9.2010 | 21:53
Landsdómur : Nú býður Samfylkingin "föllnum" ráðherrum til sellu fundar ! Skandall.
Slíkir sellufundir eru sagðir af Skúla Helgasyni vera "Liður í faglegri umfjöllun Samfylkingarinnar" vegna tilnefningar Þingmannanefndarinnar á þar til bærum ráðherrum fyrir Landsdóm.
Fyrst var bara Ingibjörg Sólrún boðin af Samfylkingunni til slíkrar "faglegrar umfjöllunar" á sellufundi Samfylkingarinnar - að vísu hafði Björgvin G. Sigurðsson einnig verið boðinn til sellufundar - en hann hafði afþakkað boðið.
Líklegt er Samfylkingin hafi fengið tiltal frá einhverjum þar til bærum innan þingsins og ekki slíkur skandall látinn viðgangast innan Alþingis - nema - fundurinn sem átti að vera með Ingibjörgu Sólrúnu í kvöld var frestað - og Geir H. Haarde og Árna Matthisen var boðið líka til sellufundar hjá Samfylkingunni til " faglegrar umfjöllunar".
Ekki hefur enn heyrst nokkuð af undirtektum Geirs og Árna varðandi sellu fundarboð Samfylkingarinnar.
Ekki er beint líklegt að þeir þekkist slíkt sellu-fundarboð frá Samfylkingunni.
Samfylkingin frestar þingflokksfundi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.