18.3.2010 | 14:15
Ekki bregður vana sínum "umboðslaust og vanhæft ríkisstjórnar líki" Jóhönnu og Steingríms !
Eina ferðina enn á að nota Göbels aðferðina og tönglast á lyginni - þangað til fólk fari að trúa því - að nú sé skjaldborg heimilanna að rísa í skjóli Jóhönnu og Steingríms - vinstri velferðar vættanna !
En fólkið á Íslandi hefur fengið að heyra alveg nóg af blekkingum og lygum til að trúa þeim - EKKI -
Það vakir ekki fyrir Jóhönnu og Steingrími að taka á skuldavanda heimilanna - Ó - NEI - ! Ekki frekar nú en áður.................!
Skjaldborgin er fyrir milljarðafólkið úr útrásinni og bönkunum - milljarða niðurfelling lána hjá þeim útvöldu - undir því eiga heimili hins venjulega manns að standa - og greiða til viðbótar - innheimtu bónus rukkarana fyrir árangursríka innheimtu !
En hinn venjulegi maður segir - NEI - NEI - og aftur - NEI - það skal ekki svo verða ! - Við tökum frekar til okkar ráða !
Langt gengið eða skammt? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.