Færsluflokkur: Heimspeki
27.7.2009 | 23:09
Hvað segja dýrin ? - Sagan af henni MÍSKU - PÍSKU.
Míska - Píska var hefðarköttur og heimsborgari.
Hún fæddist í Santa Barbara - en fluttist til Íslands með eiganda sínum og kisumömmunni Coctho
Míska Písla var hálfur síams - mjög falleg kisa - ánægð með sjálfa sig og vildi láta dáðst að sér.
Hún fékk ríkulega aðdáun í fjölskyldunni enda kisurnar báðar virtar sem fullgildir fjölskyldumeðlimir í dýra elskandi fjölskyldu.
Míska Píska var mikill veðurviti - ef svo má segja - hún lét vita ef óveður var í aðsigi.
Hún gerði það með þeim hætti að nóttina áður en óveður skall á - æddi hún um húsið á slíkri fart - fram og til baka - fram og til baka - að ekki var svefnfriður fyrir henni.
Fjölskyldan þekkti þetta og tók mark á veðurspá Mísku Písku - reynslan hafði kennt þeim það.
Svo gerist það í júní mánuði - nánar tiltekið aðfaranótt 16.júní að Míska Píska er í æðiskasti - spyrnir um húsið og heldur með því vöku fyrir fólkinu.
Ekki var búist við óveðri á þessum árstíma og tók því enginn mark á aðvörunaræði Mísku Písku í þetta sinn.
Engin veðurbrigði urðu daginn eftir.
Nóttina næstkomandi eða aðfaranótt 17. júní heldur Míska Píska uppteknum hætti og nóttina áður - æðir um húsið eins og vitlaus sé - nema hálfu verri en nóttina áður.
Enginn gat sofið fyrir látunum í henni.
Húsmóðirin á heimilinu taldi sig nú fullvissa um að kötturinn væri orðinn geðveikur að láta svona tvær nætur í röð - það hafði aldrei skeð áður.
Ekkert bólaði á óveðri né heldur voru fregnir af slíku frá Veðurstofu.
Viti menn kisan var ekki geðveik.
17. júní um miðjan dag urðu jarðskjálftarnir miklu sem lengi verða í manna minnum.
Míska Píska brást ekki - þó veðurstofan brygðist.
Jarðskjálftarnir komu öllum að óvörum nema Mísku Písku.
Þegar jarðskjálftarnir riðu yfir var Míska Píska salla róleg - kúrði sig hjá fólkinu og hughreysti þá sem
hræddir voru.Það gæti verið hugmynd fyrir Veðurstofuna að hafa sér til aðstoðar ferfættan veðurvita.
Spurt um jarðskjálftaspádóm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.7.2009 | 23:52
Lífið:
Lífið er eins og antikbúð - þar sem öllu ægir saman - ekkert er í röð og reglu - eða virkar þannig - nema betur sé að gáð.
Ef þú ferð á hraðferð í gegnum slíka búð - sérðu ekki neitt - allt rennur saman í eitt - DRASL - DRASL.
Þú sérð ekkert sem vekur áhuga þinn.
Veist í raun ekkert hvað er þar - innan dyra.
Þú æddir framhjá gersemunum - án þess að taka eftir þeim.
Þannig er heimurinn.
Þú getur ætt í gegnum hvern daginn af öðrum - án þess að grípa tækifærin sem allsstaðar leynast - ef þú bara tækir eftir þeim.
Æða - á þess að uppgötva innihald lífsins.
Æða - án þess að finna samhljóminn við lífið sjálft.