Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
5.7.2010 | 19:17
Kirkjukórinn.
Petra fór í kirkju á hverjum sunnudegi - með mömmu sinni.
Mamma Petru söng í kirkjukórnum - Hún söng mjög hátt og vel - hún leiddi kórinn eins og það var kallað.
Það var mikill vandi - allir urðu að syngja rétt og vel - allir nema presturinn - hann var alltaf falskur.
Þegar hann tónaði þá varð mamma hennar Petru rauð dílótt á hálsinum og stundum alveg niður á bringu.
Petra hlustaði ekki mikið á prestinn - afi hennar sagði að presturinn væri pokaprestur og raunar allir prestar sem hann þekkti - væru það líka.
Afi Petru fór aldrei í kirkju - en hann las í Biblíunni heima hjá sér - á hverjum degi.
Hann var samt ekki í neinum söfnuði - bara í sínum eigin söfnuði.
Hann sagði að Biblían væri merk bók og það ætti að fara eftir því sem í henni stæði.
Hann sagði Petru að ef hún hjálpaði einhverjum - einhvern tíman - þá ætti hún ekki að segja nokkrum lifandi manni frá því.
Það væri bara á milli hennar og Guðs.- Það gleddi Guð sem vissi allt.
Afi Petru sagði líka að Guð elskaði öll börnin sín - Hann kallaði þau Guðs börn.
Það stæði allt um þetta í Biblíunni.
Þegar presturinn las í Biblíunni sinni í kirkjunni - þá skildi Petra ekki neitt. - Ekki neitt !
En þegar afi hennar las í Biblíunni sinni - þá skildi hún alveg.
Það var eins og Biblían hans afa væri lifandi.
Þeir höfðu ekki eins Biblíur afi Petru og presturinn.
15.11.2009 | 17:17
Sóknarbörn Selfossprestakalls - er það nokkuð til að gera uppsteyt út af - að sameinast Hraungerðisprestakalli - úr því að Kirkjuþing tók völdin af biskupi í því máli?
![]() |
Velja ekki sóknarprest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.8.2009 | 10:55
Hjálpi mér - HEILAGUR - ! "Víðtæk kynning heima og erlendis" undir forustu Össurar!?
Eftir spuna handriti Jóhönnu og Steingríms .............!
"Hvers á þjóðin að gjalda" - HJÁLPI oss HEILAGUR !
![]() |
Víðtæk kynning heima og erlendis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tekið stöðu gegn þjóð og þingi með svikum og prettum í afdrifamestu málum þjóðarinnar í aldir - einbeitt sér í að knésetja þjóðina í skulda ánauð til fátæktar - alla nú lifandi Íslendinga og komandi kynslóðir líka ........ svona mætti halda áfram að telja !
NÚ stígur þessi sami Steingrímur í ræðustól á kirkjuhátíð norður í landi og gerir þá kröfu til íslenskra bankaræningja að þeir biðji þjóðina afsökunar........því lík hræsni....
Tóku ekki núverandi stjórnvöld sem Steingrímur sjálfur er aðili að - við þar sem bankaræningjunum sleppti.............með áframhaldandi arðráni.......!
Þér hefði verið sæmst Steingrímur að líta í eigin barm - krjúpa niður í auðmýkt (eins og þú ráðlagðir bankaræningjunum að gera í ræðu þinni fyrr í dag í Hólakirkju ) og biðja þjóð og þing fyrirgerningar á öllum þínum lygum og misgjörðum í þeirra garð sem þegnar landsins hefa mátt líða fyrir - ber þar helst að nefna - aldraða og öryrkja - börn og unglinga svo og aðra landsins þegna.........!
Þinn tími er á enda runninn hjá íslenskri þjóð - Steingrímur og Jóhanna með - BURT með ykkur - og allt ykkar siðleysi og valdníðslu !
![]() |
Bíður eftir afsökunarbeiðni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.6.2009 | 23:12
"Páll postuli sjálfur undir altari í kirkju heilags Páls í Róm" NEeeeeeeeeeeeeeeei - trúi þess ekki !
![]() |
Leifar Páls postula fundnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |