Innan tómar afsakanir - sem aðeins eru orðin tóm - og beitt frekar sem villuljósi - eru betur ósögð orð - þegar hugur fylgir ekki máli !

Afsakanabeiðnir Jóhönnu Sigurðardóttur"forsætisráðherra" í krafti forsætisráðherra-embættisins - eru af þeirri gerðinni að hefðu - oft betur verið ósagðar - má þar nefna afsökunarbeiðni hennar vegna Breiðavíkur-málsins......sem ennþá hangir í kerfinu - án þess að bætur séu greiddar til þolenda í því máli............þrátt fyrir afsökunarbeiðni "forsætisráðherrans".......!

Slíkar afsakanabeiðnir hafa lítið vægi.


mbl.is Biður þjóðina afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sterkur málflutningur Bjarna Benediktssonar gefur von ! - við stefnuræðu forsætisráðherra!

Bjarni sagði allt sem segja þurfti - staðreyndir - sannleikann og úrræði til lausnar vanda !

Bjarni sagði " Á Íslandi er ekki aðeins efnahagskreppa - heldur einnig stjórnarkreppa - það sjá allir og vita"..........Einnig sagði hann að ríkisstjórnin væri ekki starfi sínu vaxin.

Bjarni sagði að Sjálfstæðisflokkurinn myndi innan skamms tíma leggja fram nýjar tillögur í efnahagsmálum sem muni leiða þjóðina út úr kreppunni - nái þær fram að ganga.

Sagði Bjarni að með tillögunum vildi Sjálfstæðisflokkurinn tefla fram metnaðarfullum valkosti á móti metnaðarlausum fjárlögum ríkisstjórnarinnar.

Sagði hann að skattahækkanir þær og niðurskurður sem mælt væri fyrir um í fjárlögunum væri ekkert annað en gróf aðför að heimilunum í landinu - sem yrði til þess að dýpka kreppuna.

Bjarni sagði að "ríkisstjórnin ætlaði sér að ráðast í mestu skattahækkanir Íslandssögunnar"

Okkar leið - sagði Bjarni - mun bæta afkomu ríkissjóðs um allt að 80 milljarða króna strax á næsta ári.

Bjarni varaði við flötum niðurskurði í velferðarkerfinu sagði hann beint vera hættulegan - fleira og fleira áhugavert og uppbyggjandi sem hann kom inn á í ræðu sinni - má lesa um -  í viðhengisgrein .

Bjarni sendi Alþjóðagjaldeyrissjóðnum kaldar kveðjur og sagði að endurskoða þyrfti áætlun með sjóðnum.

Ræða Bjarna var meiriháttar góð vonandi hafa sem flestir hlýtt á hana við sjónvarpstækið í kvöld.

 


mbl.is Stjórnarkreppa í landinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er fólk gengið af göflunum ?

Nema það séu "útrásarvíkingar" á ferð........?
mbl.is Fálkaorða seld fyrir nær hálfa milljón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafa einhverjir verið að hætta að blogga á mbl.- Ekki hef ág orðið vör við það !

Þó einhverjir gangist upp við það að svara - kalli - Eyjunnar - þá hvað með það....?

 Þeir nýju sem koma inn - eru meira áberandi en þeir sem fara......!


Útrásarvirkni forseta Íslands í þágu útrásarvíkinga og fjármálafyrirtækja er nú sögð vera til rannsóknar hjá - Rannsóknarfnd Alþingis !

Mun þar vera um að ræða bréfaskriftir forsetans - til - ýmissa auðkýfinga erlendis þar á meðal Björgólf Thor Björgólfsson nokkur brét til hans...........!

Annars munu umrædd bréf vera í það heila 17 talsins.

Mun rannsóknarnefndin hafa kallað eftir þessum bréfum frá forsetanum í byrjun ágúst......!

Augljóst er að forsetinn hefur ekki legið á liði sínu í þágu útrásarinnar - en spurning er hvort það er í verkahring forseta - Íslands.


Ekki vanþöf á því Guðlaugur Þór Þórðarson að líta á heilbrigðismálin! - sérstaklega með til komu ný byrjaðs heilbrigðisráðherra Álfheiðar Ingadóttur sem ekki segist vera verk-kvíðin!

"Flatur niðurskurður á Landspítala hættulegur" segir á forsíðu Morgunblaðsins.

Vitnað er þar til álits Huldu Gunnlaugsdóttur að hún telji að 450 - 500 manna uppsagnir á Landspítalanum skerði öryggisnetið............!

Svo segir ný skipaður heilbrigðisráðherra Álfheiður Ingadóttir að hún sé ekki  - "verkkvíðin" - og þykist góð með það ! - Segir það ekki mest um dómgreindarleysi ráðherrans fyrir verkefninu - enda ófaglærð - fyrir fagráðuneyti heilbrigðismála.............!

Eins gott að ráðherra heilbrigðismála sé veitt eftirlit og aðhald með allt uppi á borðum.

Vel að verki staðið hjá þér - Guðlaugur Þór Þórðarson.


mbl.is Óskar eftir fundi í heilbrigðisnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur segir - eftir fund með hollenska fjármálaráðherranum í dag - Að "málið sé að verða allt hið vandræðalegasta og við svo búið verði ekki unað lengur"!

Steingrímur virðist ekki átta sig á því - að það þarf aðra ríkisstjórn til að - taka á öllu klúðrinu sem ríkisstjórn Jóhönnu hefur komið Æsseif-deilunni í...................!
mbl.is Steingrímur J.: Gagnlegur fundur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Valdið er hjá fólkinu - það mun svara stríðsyfirlýsingu Árna Páls Árnasonar félafsmálaráðherra!

Sjái hann ekki að sér í tíma - með raunhæfar leiðréttingar á greiðslubyrði heimilanna ...............!
mbl.is Segja tillögur ráðherra stríðsyfirlýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur lét ekki kúgun Jóhönnu - beygja sig til þrælslegrar hlýðni - gegn þjóðarhagsmunum!

Sagði hann sig því úr vanhæfri ríkisstjórn Jóhönnu ..................!

Valdstjórn Jóhönnu - er að þrotum komin..........!                                                                             


mbl.is Ögmundur: Var stillt upp við vegg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur sýndu nú af þér djörfung - Negldu inn lán hjá Rússunum - hættu að hlusta á tautð í AGS og Jóhönnu! Óttinn er förunautur taparans - Steingrímur! - Með hverjum ert þú í liði ?

Rússarnir myndu ekki - fara í fjárkúgunar-bandalag með AGS - fyrir Æsseif - valdníðsluveldin bresku og hollensku.........þeir óttast það við Rússana - að þeir láti ekki að þeirra stjórn.

Hlustaðu ekki á lyga hræðsluáróður þeirra um Rússalán.......Steingrímur !....Stattu þig.....!

Lán frá Rússum - AGS - BURT -...........!


mbl.is Ekkert samkomulag um Rússalán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband