Takk - Robert Spanó Umboðsmaður Alþingis - þú gefur þjóð þinni von með störfum þínum!

Algjörlega ótilkvaddur af öðru en frétt á RÚV varðandi konu á atvinnuleysis bótum og frestun Vinnumálastofnunar á greiðslum atvinnuleysis bóta til konunnar -  vegna mæðralauna sem konan átti rétt á að fá.......

 Tók Róbert Spanó að eigin frumkvæði málið upp við vinnumálastofnun og einnig annarra  í sömu aða svipaðri stöðu og konan...........óskaði hann upplýsinga varðandi mál konunnar og málsmeðferð Vinnumálastofnunar í slíkum málum.

Það væri annað ástand ríkjandi í þjóðfélaginu okka hér í dag ef fleiri opinberir embættismenn og stjórnmálamenn ynnu störf sín út frá líku sjónarhorni og Róbert Spanó Umboðsmaður Alþingis .

 


mbl.is Vill upplýsingar um rétt atvinnulausrar konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er "plott-spuni" undan rifjum "samspillingarinnar" runninn !

Með lyginni og hræðslu áróðri á að kúga fram ríkisábyrgð !

Hlustið ekki á þessa þvælu!Það er alltaf eitthvert þvælu plottið að dúkka upp með sama yfirbragðinu!

Þetta er ekki siðuðu fólki bjóðandi...................

 

 


mbl.is Gagnrýna utanríkisráðherra ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skila peningunum til ASG Steingrímur - stattu nú við þín fyrri orð!

Ekki meiri skuldsetningu á þjóðina hægri vinstri og út í bláinn í milljarða vís - Steingrímur !

Hættu að hugsa um meiri lán hér og enn meiri lán þar Steingrímur !

Annars verðurðu fjarlægður frá ríkiskassanum Steingrímur !


mbl.is Bagalegt ef fyrirtaka AGS tefst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er í gangi ? Ennþá er lýst eftir barnungri stúlku - smávaxinni - þessi er 15 ára gömul !

Bregðast verður við svona málum og finna barnið strax - rannsaka ástæður og jafnframt að setja inn úrræði........

Þetta eru skelfileg mál og svona sí endurtekin - á örfáum vikum........


Er flótti orðinn úr heilbrigðisstéttunum - til útlanda ?

JÁ - en það er bara ekki sagt frá því..............

Hvers vegna ? Er það kannski eitt af því sem  bannað er að upplýsa um ?


mbl.is Hulda í ársleyfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látt siglandi Össur bjóst við gullvagninum inn í ESB - en mætti eins miklu fálæti og rúmast gat innan "diplomatsíunar"!

Hvað er "diplómatiskur sigur" Össur ?.........

Er það kannski að vera ekki hent út -  með handafli !


mbl.is Össur: „Diplómatískur sigur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað segja dýrin ? - Sagan af henni MÍSKU - PÍSKU.

Míska - Píska var hefðarköttur og heimsborgari.

Hún fæddist í Santa Barbara - en fluttist til Íslands með eiganda sínum og kisumömmunni Coctho

Míska Písla var hálfur síams - mjög falleg kisa - ánægð með sjálfa sig og vildi láta dáðst að sér.

Hún fékk ríkulega aðdáun í fjölskyldunni enda kisurnar báðar virtar sem fullgildir fjölskyldumeðlimir í dýra elskandi fjölskyldu.

Míska Píska var mikill veðurviti - ef svo má segja - hún lét vita ef óveður var í aðsigi.

Hún gerði það með þeim hætti að nóttina áður en óveður skall á - æddi hún um húsið á slíkri fart - fram og til baka - fram og til baka - að ekki var svefnfriður fyrir henni.

Fjölskyldan þekkti þetta og tók mark á veðurspá Mísku Písku - reynslan hafði kennt þeim það.

Svo gerist það í júní mánuði - nánar tiltekið aðfaranótt 16.júní að Míska Píska er í æðiskasti -  spyrnir um húsið og heldur með því vöku fyrir fólkinu.

Ekki var búist við óveðri á þessum árstíma og tók því enginn mark á aðvörunaræði Mísku Písku í þetta sinn.

Engin veðurbrigði urðu daginn eftir.

Nóttina næstkomandi eða aðfaranótt 17. júní heldur Míska Píska uppteknum hætti og nóttina áður - æðir um húsið eins og vitlaus sé - nema hálfu verri en nóttina áður.

Enginn gat sofið fyrir látunum í henni.

Húsmóðirin á heimilinu taldi sig nú fullvissa um að kötturinn væri orðinn geðveikur að láta svona tvær nætur í röð - það hafði aldrei skeð áður.

Ekkert bólaði á óveðri né heldur voru fregnir af slíku frá Veðurstofu.

Viti menn kisan var ekki geðveik.

17. júní um miðjan dag urðu jarðskjálftarnir miklu sem lengi verða í manna minnum.

Míska Píska brást ekki - þó veðurstofan brygðist.

Jarðskjálftarnir komu öllum að óvörum nema Mísku Písku.

Þegar jarðskjálftarnir riðu yfir var Míska Píska salla róleg - kúrði sig hjá fólkinu og hughreysti þá sem

hræddir voru.Það gæti verið hugmynd fyrir Veðurstofuna að hafa sér til aðstoðar ferfættan veðurvita.  


mbl.is Spurt um jarðskjálftaspádóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var stækkunarstjóri ESB Olli Rehn - með "plott handrit" frá Samfylkingunni - þegar hann var hér oftar en einu sinni í vetur !

Fór stækkunarstjórinn þá mikinn í áróðri fyrir aðild að ESB -  með loforðin á hraðbergi fyrir góðu brautargengi fyrir aðild að ESB - bara ef Ísland sækti - NÚ - um aðild og sem allra - allra fyrst  þá yrði brautin bein og greið með - FLÝTIMEÐFERÐ - það muna allir eftir þessu - svo mikinn fór stækkunarstjórinn ....................

Hvað segir stækkunarstjórinn Olli Rehn nú - JÚ - hann segir Ísland fær ekki flýtimeðferð   !  

Það er ekki nema von að Össur ræfillinn sé vonsvikinn - vinalaus í ESB !     


mbl.is Ísland fær enga sérmeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonsvikinn Össur - falbýður auðlindir Ísland í Þýskalandi meira að segja væntanlega olíu! - gat hann ekki látið vera að nefna svo mikið var í húfi að sannfæra Þjóðverja um velsæld þá sem þeim stæði til boða!

Bara ef þeir styddu nú aðild Íslands í hans langþráða ESB............... honum flökrar ekki við honum Össuri að leggjast lægra en látt við föðurlands svikin..........                                                           Össur treystir greinilega ekki á stuðning Þjóðverja ........... og fyrir sinn hatt -  þá er Össur ekki rétti sölumaðurinn til að snúa Þjóðverjum á sitt band ...............

Fullveldissinnar eru sáttir með það -  Össur! Við getum lifað sjálfbær án Evrópu Össur !


mbl.is „Getum lifað án Evrópu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugsið ykkur - ég hélt alltaf að Björgólfsfeðgar væru heiðarlegir!

Nú er maður bara miður sín yfir öllum ósköpunum....................


mbl.is Skoða lánveitingar Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband