Útrásar-ræningjarnir rétta ekki ölmusu nema að "vel athuguðu máli" þeir gefa ekki ölmusu eftir græðginni sinni - ó NEI - það er skatta-afslátturinn af ölmusunni sem telur !

Þeir - Yngvi Örn Kristinsson ráðgjafi  Jóhönnu forsætisráðherra og aðstoðarmaður Árna Páls félagsmálaráðherra sem var áður framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans fyrir og fram yfir hrun - William Fall bankastjóri Straums fyrir og fram yfir hrun og Hannes Smárason "athafnamaður" fyrir og fram yfir hrun - þessir þrír gera allir stórtækar kröfur í þrotabú Landsbankans upp á fleiri hundruði milljóna króna hver.

En að þeir geri það af góðseminni einni saman - svo þeir geti gefið stórgjafir til góðgerðarmála - því trúir varla nokkur maður - en ölmusu skattaafslátturinn getur komið sér vel. 


mbl.is Gefur launin til góðgerðarmála
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband