Árni Páll toppar vanhæfni sína! - Ófagleg og vítaverð aðför hans að Runólfi Ágústsyni ný skipuðum umboðsmanni skuldara - kallar á tafarlausa afsögn ráðherrans! Einnig er vegið að skuldurum - ekki líta fram hjá því !

Runólfur Ágústson sýndi það í kastljós viðtalinu í kvöld að hann stendur fyrir því sem hann segir - og virðist hafa allt það mikilvægasta til að bera sem Umboðsmanni skuldara kemur að gagni í því vandasama starfi.

Þó Runólfur Ágústsson hafi aðeins verið einn dag starfandi sem Umboðsmaður skuldara - þá verður vandfundinn eftirmaður hans.

Aðför Árna Páls að Runólfi gerði hann með það að markmiði - að skýla eigin vanhæfni -

En það snérist algjörlega  í andhverfu sína fyrir Árna Páli - nú gengur hann um götur og torg í nýju fötum ókrýnda keisarans - þar til ef hann sýnir þann manndóm og segir sig frá ráðherraembættinu.

Runólfur Ágústsson er sigurvegarinn.

 


mbl.is Umboðsmaður skuldara hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnar Þór Þórarinsson

Ráðherrann að missa það enn og aftur. Tækifærissinni. Popúlisti. Með hland fyrir hjartanu.

Rúnar Þór Þórarinsson, 4.8.2010 kl. 06:40

2 Smámynd: Benedikta E

Sat segir þú Rúnar - hann er ekki hæfileikum prýddur til ráðherra-starfa hann Árni Páll.

Benedikta E, 4.8.2010 kl. 08:46

3 Smámynd: Sigurbjörg Kristmundsdóttir

Sammála, út með Árna Pál.

Sigurbjörg Kristmundsdóttir, 4.8.2010 kl. 09:54

4 Smámynd: Benedikta E

Sigurbjörg - Tall fyrir innlitið - Út með kallinn

Benedikta E, 8.8.2010 kl. 13:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband