Fyrrum - Rlistinn í Reykjavík og nú verandi stjórnarmyndunar viðræður ! ! !

Það setti að mörgum Reykvíkingnum hroll að hlusta á þau Steinunni Valdísi og Árna Þór í kastljósinu í kvöld - og þegar þau gerðust svo djörf í dómgreindarleysinu að vitna til eigin vegferðar í Borgarstjórn Reykjavíkur á tíma Rlistans í borginni.

Þeim hefði verið sæmst að bera það ekki á borð - eins og ráslagið hjá þeim var í Reykjavíkurborg.

Settu borgina í þvílíkt skuldafen - rústuðu allti þjónustu - hækkuðu öll gjöld og bjuggu til ný nöfn á skuldabyrgði fyrir borgarbúa - enginn gleymir strætisvagnakerfinu sem þau lögðu gjörsamlega í rúst  fyrir offjár ! ! !

Auk þess að snúa borginni gjörsamlega á hvolf - ekki til bóta  NEI aðeins til að rústa.Miðborgarkjarninn látinn grotna niður - gefin leyfi fyrir súlustöðum - og drykkjusvallstöðum sem opnir voru allar nætur fram á næsta dag - svona mætti lengi telja upp afrekin þeirra.

Þannig að það getur ekki lagst nema illa í þá sem - þekkja til vinnubragða þessarra flokka Samfylkingarinnar og Vinstrigrænna að þeir skuli nú sitja í stjórnarmyndunarviðræðum fyrir ríkisstjórn.

 


mbl.is Falið að mynda stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband