Var Þorgerður Katrín ekki bara stál heppin að fá ekki Hörpu starfið?

Raunar stór undarlegt að hún skyldi láta sér til hugar koma að sækja um þetta starf - En heppin var hún að fá það ekki. Gjörðir Dags Bergþórusonar Eggertssonar eru auðvitað jafn lágkúrulegar og sýna eins og oft áður hver það er sem heldur í hundabandið á Bestaflokknum í borgarmálunum.
mbl.is Segir Dag hafa komið veg fyrir ráðningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hefði toppað spillinguna að fá Þorgerði í þetta starf. Fáránlegt algerlega.

DoctorE (IP-tala skráð) 11.8.2012 kl. 14:39

2 identicon

Svakalega er ég fegin að búa ekki á Íslandi.

Helga (IP-tala skráð) 11.8.2012 kl. 16:01

3 Smámynd: Benedikta E

Helga - Alltaf er þörf en nú er nauðsyn fyrir sterka Íslendinga búandi á Íslandi - Í útlöndum eru Íslendingar alltaf útlendingar hvað lengi sem þeir dvelja þar - Eftir því sem Íslendingur dvelur lengur í útlöndum því sterkari verða íslensku ræturnar - Það eru örlög að vera fæddur Íslendingur.

Benedikta E, 11.8.2012 kl. 16:27

4 identicon

Sammála Benedikta E.

Ég er líka fegin að Þorgerður fékk ekki starfið. En auðvitað er það hennar réttur að sækja um og sýnir að hún stefnir (vonandi) á að hverfa frá störfum á Alþingi.

En það er góður punktur hjá Hannesi Hólmsteini að benda á af hverju óp kvenréttindakvenna óma ekki vegna þessa - þær mættu líka hugsa sinn gang.

En það er morgunljóst að Dagur B. heldur í hundabandið í borginni þó kjörfylgi hans hafi verið lítið. - Og Gnarrinn spókar sig í vinsælum dægurmálum. - Mér er t.d. spurn hvort hann hafi látið sig nokkuð varða þennan ágæta mann sem lifði af kjarnorkuárásins í Hiroshima og heimsækir okkur og fræðir þessa dagana með sinn boðskap og ósk um frið í heiminum.

Líklega ekki - það eru allt of gamlar fréttir fyrir trúðinn.

Sigrún Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 11.8.2012 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband