Jóhanna hefði átt að gera eins og útvarpsstjórinn - láta ekki sjá sig á skjánum.

Það hefði farið best á því - því ekki var spekinni fyrir að fara - frekar en fyrri daginn.
mbl.is Uppbygging og vöxtur framundan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála  ! ...Hefði betur verið heima !!!!!!!!

ransý (IP-tala skráð) 1.1.2011 kl. 02:12

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Bíddu við: þarf ekki að rökstyðja þetta betur?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 1.1.2011 kl. 03:45

3 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Enginn forsætisráðherra hefur skaðað meira íslenska þjóð.

Helga Kristjánsdóttir, 1.1.2011 kl. 04:41

4 Smámynd: Árni Karl Ellertsson

Sammála elsku vinan.   Guðjón það þarf ekkert rökstyðja þetta betur, þetta skýrir sig sjálft.

Árni Karl Ellertsson, 1.1.2011 kl. 04:57

5 identicon

Jóhanna er ekki leiðtogi frá náttúrunnar hendi og hefur hætt sér inn á svæði sem hún á ekki heima á. Hún er of leiðitöm, og áhrifagjörn og of hégómleg, (hún roðnar þegar sumar fréttakonur skjalla hana!,) til að geta hagað sér eins og leiðtogi. Leiðtogi er klettur sem stendur óhaggaður af lasti, en sérstaklega af lofi, óvinum, en sérstaklega vinum. Jóhanna hefur ekki þennan innri styrk og þennan innri frið sem einkennir sannan leiðtoga, heldur er hún sem rekald er hrekst í vindi. Það versta af öllu er að Jóhanna stjórnast af ótta, en það á hún sameiginlegt með Steingrími og fleirum. Þess konar fólki lýsir einn af stofnfeðrum Bandaríkjanna, upplýstur maður, með orðunum "Those who are willing to give up essential liberty, to find a bit of temporary safety, deserve neither and will lose both." Og ef aðeins þjóðin hefði treyst þessu fólki meir, tekið þau trúanlegar, gefið þeim meira "tækifæri" og sýnt minni mótstöðu, þá hefðum við verið óverðug að sjálfstæði okkar og frelsi og hefðum þegar glatað báðu, því ótti sem kallar á smá ímyndað öryggi sama hvað stýrir Jóhönnu og Steingrími og það var óttinn sem hrakti þau til að vera með endalausan áróður fyrir Icesave I, neita að skoða aðra möguleika, reyna að telja þjóðinni hughvarf að mæta á kjörstað (, skammarleg hegðun sem var móðgun við lýðræðið og þjóðina alla), og spá dómsdegi, eldi og brennisteini ef við beygðum okkur ekki strax undir svipu gömlu heimsveldanna sem nú herja á okkur, og hafa þegar knésett hálfa Afríku í eilíft skuldafangelsi og hindra með því alla uppbyggingu, því lítið sem ekkert er afgangs eftir skuldir...og þá skapast neyðarástand sem þessar sömu þjóðir hafa nýtt sér til að sölsa undir sig allar helstu auðlindir Afríku og allra fátækra, skuldsettra þjóða í heiminum..Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er nútíma arftaki  (Átak Bono og fleiri MAKE POVERTY HISTORY er enn í gangi, kynnið ykkur það! Að samþykkkja EKKI Icesave er innlegg í þá baráttu, því það hjálpar hrjáðustu þjóðum heims með að setja nýtt fordæmi um lausn úr skuldavanda og mun hafa afdrifarík áhrif á alþjóðalöggjöf.......horfið fram í tíman! Þá mun allur heimurinn elska Ísland fyrir staðfestu sína!)

Helsta einkenni alvöru leiðtoga er ÓTTALEYSI. Hann lætur ekki hræða sig til að taka ákvarðanir byggðar á stund og stað og hvað þá grýlum og blekkingum og blindþokum og ryki sem aðrir þyrla upp og slá í augu hans, eins og er raunin með Jóhönnu og AGS, ESB etc hvers hvert einasta orð hún tekur jafn trúanlega og leiguliðinn í gamla daga, hræddur um að vera annars brenndur á báli, orð biskups og kóngs, því hún er að eðlisfari þræll, og Steingrímur líka, og því vanvirða þau frelsi annars fólk og traðka í svaðið, þó réttur hvers manns, meðfæddur sé frelsið.

Það er HÆTTULEGT að hafa "leiðtoga" sem ekki búa yfir réttum eiginleikum.

Ef við losnum okkur ekki mjög fljótt við þetta fólk, þá fara þau að verða agressívari heltekin af ótta sem þau eru, og munu hoppa á fyrsta tilboð um að selja íslensku þjóðina. Þetta er bara þeirra eðli, þau eru ekki merkilegri eða betri manneskjur en það, þau eru í ánauð og fjötrum blekkinga og sjúklegrar hræðslu sem lætur þau taka rangar ákvarðanir og fékk þau nánast til að tortýma þjóðinni.

Ísland er kúgað af gömlu heimsveldunum og þarf nýja leiðtoga fyrir nýja tíma. Leiðtoga sem eru óttalausir að standa uppi í hárinu á þeim sem fara með völd í heiminum og breyta þannig gangi sögunnar. Ísland sem hefur verið hlunnfarið af sömu öflum og Indland, verðandi miðstöð heimsins, þarf mann sem er alvöru leiðtogi, hugrakkur, samkvæmur sjálfum sér og haggast ekki frekar en klettur hvað sem líður hótunum og hræðsluáróðri, mann eins og Ghandi.

Jóhanna og Steingrímur eru eins fjarri Ghandi og komist verður. Þau minna frekar á gyðingana í útrýmingarbúðunum sem fengu örlítið betri meðferð (hærra kaup etc) í skiptum fyrir að fara illa með sína eigin samlanda og urða lík þeirra. Mér þykir það leitt en svona fólk er ekki hægt að bera saman við neitt annað. Þau eru heiglar og svikarar. Fyrirgefum þeim, eyðum ekki orku í að hata þau, en finnum þessu sálsjúka og fárveika fólki með sinn sjúklega Stockholms syndrome, sem laug því hér Íslandi bæri "siðferðileg skylda"  til að borga Icesave I (og Afríkönunum þá til að svelta undan skuldafangelsi gömlu nýlenduherranna samkvæmt sömu rökum og sömu lífssýn!), á að finna störf við hæfi, þar sem þeirra góðu eiginleikar, sem vonandi eru einhverjir nýtast, án þess þau geti skaðað aðra með valdi, því vald eiga áhrifagjarnir heiglar aldrei að fá í hendur. 

XXX (IP-tala skráð) 1.1.2011 kl. 08:21

6 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

XXX: mér finnst samanburðurinn við útrýmingarbúðir ekki vera viðeigandi og skil ekki hvernig þér huldumaður lætur aðra eins dellu frá þér fara.

Benedikta E.: Þú talar í stríðfyrirsögnum eins og ekki þurfi að rökstyða umdeild ummæli neitt, þau verða því varla talin vera heldur sæmandi fyrir viti borna manneskju sem þó allir ættu að reyna að vera.

Vinsamlegast

M

Guðjón Sigþór Jensson, 1.1.2011 kl. 14:41

7 identicon

Þessi xxx skrifar ætti nú frekar að skrifa sitt eigið blogg - hún er búin að líma þetta inn við flesta sem hafa bloggað um fréttina um ræðu Forsætisráðherrans. Algjör frekja.

Veraldarálfurinn (IP-tala skráð) 2.1.2011 kl. 04:48

8 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Sammála! Svona vitleysa virðist ganga í suma, því miður. Skrif xxx eru augljóslega af sömu rót og verstu níðingar mannkynsins tömdu sér.

Dapurlegt, mjög dapurlegt.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 3.1.2011 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband