Bullið endalausa ! - Sameinuðu þjóðirnar byrja ekki á því að safna að sér fólki - með boði um nefndarformennsku áður en það er ljóst fyrir hverju viðkomandi stendur - ekki minnst ferilsskráin!

Ingibjörg Sólrún stimplaði sig inn eða út hvernig sem menn vilja orða það - þegar hún var utanríkisráðherra og eyddi mest af þeim tíma sem hún var í því embætti -  í Palestínu og öðrum löndum þar í kring.

Hún gekk um með slæður að hætti innfæddra ( þetta var sýnt í sjónvarpinu) og eftir því sem talað var um þá - var markmið íslenska utanríkisráðherrans að verða friðarleiðtogi þarna á þessu svæði.

Ef rétt er munað þá var eitthvað um fjárveitingar ( að sjálfsögðu úr íslenska ríkiskassanum ) frá íslenska ráðherranum hægri vinstri til ýmissa málefna í þessum löndum.

Síðan tók við margfrægt verkefni hennar - Öryggisráðið - sem öllum er kunnugt og kostaði fúlgu fjár fyrir ríkiskassann - það var ekki horft í það þó íslenska hagkerfið væri þá komið á bjargbrúnina.

En þegar Ingibjörg Sólrún var á endasprettinum í Öryggisráðs óráðinu - þá ferðaðist hún um Kyrrahafseyjarnar í einkaþotu frú - litla Bjögga Thor - og var frúin með í þotu-ferðinni.

En Ingibjörg Sólrún lét ekki þar við sitja nú sló hún sig til riddara og stofnaði sjóð upp á 420 milljónir til stuðnings við smá eyríki í Kyrrahafinu -

Ríkissjóður Íslands var látinn borga  sjóðinn - fyrir smá eyríkin í Kyrrahafinu.  Í Morgunblaðinu 24.september 2008 var lítil frétt um stofnun þessa sjóðs - annað hefur ekki sést eða heyrst um þennan sjóð.

Í september 2008 kom Ingibjörg Sólrún fram í sjónvarpi hér heima til að fullvissa lýðinn um að fjármál landsins væru í hinu allra besta ástandi.

Síðan flaug Ingibjörg Sólrún til Bandaríkjanna á vit Öryggisráðsins - þó svo að bankarnir þá þegar veguðu salt á bjargbrúninni. 

Í byrjun október 2008 hrundu bankarnir hver um annan þveran hver sína nóttina.

Það er ekki að undra að það sé eftirspurn eftir slíkum mannkosti hjá Sameinuðu þjóðunum.

 


mbl.is Kemur ekki að rannsókn SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband