Launamál Más Guðmundssonar seðlabankastjóra hafa komið Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra - loksins - í sjálfheldu - með birtingu tölvu pósta um málið - Afsögn Jóhönnu blasir við!

Lenging Jóhönnu í lygavefnum gerir ekki annað - en að gera hana og alla þá sem inni í lygavefnum eru nú þegar - ennþá ömurlegri en orðið er ótrúverðuga og vanhæfa þar með seðlabankastjórann Má Guðmundsson - honum ber að segja af sér ásamt öðrum sem að þessu svika og lygamáli hafa komið.

Það er tilgangslaust að ljúga meira en orðið er - tölvupóstarnir  segja það sem segja þarf.

Fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar á Alþingi Íslendinga um kjör seðlabankastjóra og svör Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við fyrirspurn hans - er vert að hlýða á inni á vef Alþingis - Kjör seðlabankastjóra B - 898. mál á 138. löggjafarþingi.

Þar bliknar Jóhanna hvorki né blánar við að matreiða helbera lygina fyrir þjóð og þing úr ræðustól Alþingis.

Jóhanna Sigurðardóttir þú hefur ekki annað að gera en segja af þér sem forsætisráðherra og þingmaður og öðrum trúnaðarstörfum fyrir þjóðina ef fleiri eru - launalaust frá deginum.


mbl.is Már og Jóhanna ræddu launin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Smjörklípa..

hilmar jónsson, 6.6.2010 kl. 14:41

2 Smámynd: Jón Sveinsson

Eins og komið hefur fram ætti ekki að þurfa að ræða neitt frekar, Því ef við hæfum þingmenn og Ráherra sem væru hliðhollir þjóð og líð þá væru þau öll búin að segja af sér,en því miður er ekki svo Öll ríkisstjórnin að frátöldum dómsmálaráðherra eru LYGARAR OG ÞJÓÐAR SKÖMM.

Jón Sveinsson, 6.6.2010 kl. 15:50

3 Smámynd: Benedikta E

hilmar - smjörklípa segir þú - hvernig á að líta á það ?

Að lygar og fals séu smá mál.........?

Benedikta E, 6.6.2010 kl. 16:02

4 Smámynd: Benedikta E

Jón - Sammála þér  dómsmalaráðherra ríkisstjórnarinnar Ragna Árnadóttir hefur staðið sig með sóma í sínum störfum .

Allir hinir ráðherrarnir eru algjörlega vanhæfir og sumir stór hættulegir þjóðarhag vegna vanhæfni sinnar og eigin hagsmuna hyggju sem stangast á við þjóðarhag .

Burt með þá alla með tölu - STRAX - !

Benedikta E, 6.6.2010 kl. 16:07

5 identicon

Svona af því að mig vantar enn málefnaleg svör þín Benedikta um stjórnmálamenn Sjálfstæðisflokksins - úr því að moggararnir eru komnir í smjörklípugírinn þá ætla ég ekki að láta mitt eftir liggja:

Nú gæti ég næstum því hlegið - eða grátið.

Mér finnst ótrúlegt hversu margir kjósa ennþá óheiðarlegasta mútulýð landsins. Það má segja að það sé yfirlýst stefna innan sjálfstæðisflokksins að vinna að atvinnufrelsi í skjóli ,,mútuþægni" - ef marka má orð spunameistarans Hannesar Hólmsteins. Vill þá þannig til að 30-40% landsmanna hafi ráð á því að borga þeim? Það hlýtur að vera, enda mundi flokkurinn annars tæpast standa sig í að vinna að almannahag heldur misjafnt í miðað við borganir.

Siðblindan sem einkennir það að geta öskrað og gargað yfir þeim sem þiggja styrki, og eru í öðrum flokkum - en þegja síðan þunnu hljóði um eigin flokkshræ, s.s. Gísla Martein sem ekki vill gefa neitt upp og svo Guðlaug Þór... það er aldeilis heiðarleikinn þar. Það er ekkert heiðarlegt við það að þiggja styrki - en vera síðan ekki tilbúinn til að birta upplýsingar um styrkþega. Það er heldur ekki heiðarlegt að horfa á stjórnmálamenn vinna skammlaust fyrir þau fyrirtæki sem hafa hyglt þeim - og öfugt í gegnum tíðina. Stjórnmálamenn sem hafa síst staðið í vegi fyrir því að heilu byggðarlögin eru rúin sinni helstu lífsbjörg, já ég er að tala um sjávarplássin og kvótann - Kristján Þór þingmann og sérlegan aðstoðarmann Þorsteins Más Baldvinssonar. Er það sérlega hreint - og landinu öllu til hagsbóta?

Sigrún Björk - mér finnst hún ágætis stjórnmálamanneskja - en það þarf meira til. Að vera reiðubúin til að taka áhættu í viðskiptum, væntanlega með eignir að veði - og vera reiðubúin fyrir gróðann, en ætla síðan hægt og hljótt að skjóta eignunum undan og standa þannig ekki í skilum. Er það hótinni betra en útrásarvíkingar? Hún VARÐ að segja af sér. Persónur annarra er ómögulega hægt að segja að séu dregnar inn í þessar kosningar, eða að forystan gjaldi afhroð. Til þess eru þessar kosningar alltof sérstæðar. Í stjórnmálasögu þá hefur það verið gegnumgangandi að þeir flokkar sem taka við skítabúi (eins og S og VG eftir verstu stjórnun allra tíma í góðærinu- atvinnuleysistryggingasjóður vanræktur í m.v. stöðu búsins svo og LÍN) og verða óvinsælir vegna niðursveiflu og nauðsynlegrar hagræðingar og niðurskurðar og gjalda þess í næstu kosningum af því að gleymskan er svo mikil um raunverulega sök. Ég veit ekki til þess að oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri hafi verið persónulega tortryggður á neinn hátt. Auk þess þá væri Samfylkingin ekkert bættari með því að fórna allri forystunni, heldur gildir það sama um þann flokk eins og aðra að það þarf að laga til í boðleiðum, bæði m.t.t. grasrótar og svo almennings - tengslin út í þjóðfélagið.

Þjóðfélagið ætti þá kannski að krefjast þess að Bjarni Ben segði af sér - það er merkilegt hvernig krosseignatengsl hafa náð að hylja þá slóð, sem þó mætti vera öllum ljós ef fjölmiðlar stæðu sig í stykkinu.

Ég fyrir mitt leyti bið fyrir því að ,,sjálftöku-stríðsrekstrarflokkur kvótagreifanna og ameríkusleikjanna" þurrkist út - enda voru það helst þeir sem ýttu undir viðbjóð eins og styrkjasöfnun flokka og manna, silfurausuliðið sem eirir í raun engum sem er ekki með yfirburðarfjármagnstekjur - enda skattastýringin sífellt til hagsbóta þotuliðinu.

Kýs Jóhönnu hvaða dag sem er - frekar heldur en að kjósa yfir mig að hjálpa til við að moka undir rassinn á BB og co.

Herdís (IP-tala skráð) 6.6.2010 kl. 19:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband